Monday, July 18, 2016

Vaxlitalistaverk :)


Mig langadi til ad prófa svolítid um daginn sem ég gerdi oft sem krakki, og tad kannast eflaust margir vid tetta.
Dreifa yddudum vaxlitum á blad og strauja, svo teir brádni og út kemur skemmtilegt listaverk, sambland af allskonar litum. 
Ég ákvad ad kaupa mér vaxliti og prófa tetta aftur, tví mig langadi í fallegar myndir upp á vegg og ég hef ekki mikla hæfileika til ad teikna eda mála svo tetta vard fyrir valinu. 
Ég var hissa á tví hvad tetta kom vel út og svo er tetta svo SÚPER einfalt.
Hér er smá DIY video.


 ¨¨*¨¨





Wednesday, July 13, 2016

Dúllerí í sumarfríinu ¤*¤

Gódann og blessadan daginn..
Tími til komin ad setja inn blogg, hef nóg ad blogga um en hef bara ekki alveg haft mig í tad ad setjast nidur og skrifa enntá. Hér í Kaupmannahöfn er sólin ekki mikid búin ad láta sjá sig í sumar, fyrir utan nokkra mjög góda og heita sólardaga í maí. 
Ég hef tví haft fullt af tíma í sumarfríinu mínu hérna heima, inni í rigningunni til ad dúlla mér og föndra ýmislegt, prjóna og hekla. 
Mig langadi ad deila med ykkur einu sem ég hafdi alveg sérstaklega gaman ad, en tad er húfa med rosalega miklu úttalningarmynstri. Ég hef alltaf haft gaman af tví ad sitja og einbeita mér med krefjandi lítil verkefni, eins og púsl, krossaum eda einhversskonar gátur og tetta munstur var sérstaklega skemmtilegt ad prjóna. 
Til ad prófa munstrid ákvad ég ad gera litla barnahúfu, án uppskriftar, fitjadi bara upp eftir margfeldi af lykkjufjölda í mynstrinu og sirkadi út stærdina. Húfan heppnadist vel og ég er ótrúlega ánægd med útkomuna. Tetta tók vissulega sinn tíma, tar sem engin lína er eins og munstrid krefst tvi mikillar einbeitingar svo engar villur komi upp. 
Eins hef ég verid ad reyna ad prjóna hjálmahúfur, en uppskriftina af teim fékk ég frá langömmu minni, ég leyfdi einni ad fylgja med á myndunum. 
Hér er svo útkoman.


Uppskriftin af hlébardahúfunni.
*Fitja upp 80 lykkjur 
(munstrid er 20 lykkjur svo ef húfan á ad vera stærri má bæta vid 20 lykkjum eftir törfum)
* Prjónid nokkrar umferdir gardaprjón. (slétt umferd, brugdin umferd, til skiptis)
*Prjónid eftir munstrinu, alls 37 umferdir.
*Fellid af og saumid saman á toppnum og gangid frá endum.
*Einnig er hægt ad binda húfuna í hornunum og útbúa lítil "eyru".
*Ég notadi Kambgarn, og tad fór minna en hálfur hnykill af hvorum lit í húfuna.
*Ég giska ad stærdin passi á 3-12 mánada barn.
 Munstrid fann ég á danskri sídu hér.
I found the pattern here.

Ein sæt kisa vard til líka. 
Njótid sumarsins ¤*¤
Please let me know in comments below if you would like me to write the blogs in English as well.

Tuesday, May 17, 2016

Nýtt kúrudýr!

Jæja, ég veit ad tad er ansi langt sídan ég skrifadi sídast. Eins og ég hef nefnt ádur tá er ég ad skrifa hér í frítíma mínum sem hefur ekki verid mikill upp á sídkastid vegna skóla og vinnu. 

Ég var med leik um daginn á like sídunni fyrir bloggid á facebook, tar sem skilyrdin fyrir ad geta unnid voru sú ad tad turfti ad skrifa hugmynd af dýri og litasamsetningu í komment. 
Ég fékk fullt af nýjum hugmyndum og fékk vinningshafinn kúrudýr eftir sínum óskum, sem ég svo loksins nádi ad klára ad útbúa fyrir stuttu. 
Eins og ég hef ádur sagt líka tá hef ég aldrei farid efitr neinni sérstakri uppskrift svo hvert kúrudýr er svolítid einstakt og geri ég tau vanalega alveg frá grunni án tess ad fara eftir neinu sérstöku munstri. Tad krefst tessvegna tíma og vinnu ad búa til "nýtt" dýr, en ad tessu sinni vard tad kisa og finnst mér hún bara hafa heppnast mjög vel. ég læt nokkrar myndir fylgja og svo vona ég ad ég nái ad gera enntá fleiri dýr í sumar, med fleiri og fjölbreyttari litasamsetningum. En hugmyndir sem komu upp voru medal annars andarungi/önd, panda og ugla og svo hafdi ég sjálf hugsad mér ad gera fleiri dýr, en tad kemur í ljós seinna.
Ég leyfi myndum af nýjasta dýrinu ad fylgja med í tessari færslu, endilega segid mér hvad ykkur finnst :) 





Saturday, April 9, 2016

Stofan mín - My living room

Eins og ég var búin ad lofa fyrir nokkud löngu sídan, tá ætladi ég ad sýna ykkur smá innlit í stofuna mína eftir smá breytingu. 
Ég leyfi myndunum bara ad njóta sín. 








Í færslunni um myndina fallegu, taladi ég um ad finna lausn á tví hvernig ég gæti falid ristarnar hjá ofninum. 
Hér er komin ein lausn, en ég saumadi "gólfpúda" úr gömlum gardínum og fyllti hann med auka sæng sem ég átti og fötum sem vid notum ekki lengur. 






Sjónvarpsskenkurinn fyrir og eftir
(takid eftir snúrudraslinu í horninu-ég toli ekki snúrur, og ákvad ad setja prentarann hinum megin vid skápinn sem gerir ad snúrurnar enda undir skápnum og sjást tví ekki eins mikid) 

Ég gæti endalaust fundid eitthvad nýtt til ad breyta og gera ödruvísi, en ég er núna ordin ágætlega sátt vid útkomuna eins og er. 

Monday, April 4, 2016

GJAFALEIKUR!

Smá gjafaleikur sem ég set í gang á medan ég skrifa prófaverkefnid mitt, en eftir rúma viku fer allt á fullt aftur hjá mér. Ég er komin med fullt af hugmyndum ad nýjum verkefnum og hlakka til ad skrifa fleiri blogg:)
Til ad taka tátt í leiknum tarf ad fara á facebook-sídu bloggins og fylgja skrefunum 3.  
Lesid nánar um kúrudýrin í færslunni Heklud Kúrudýr :) 


Sunday, March 27, 2016

Kökudiskur/standur - Cake stand DIY

Gledilega páska, tad er ansi langt sídan ég gerdi færslu, en tad er búid ad vera frekar mikid ad gera hjá mér og ég er ekki búin ad geta sinnt blogginu eda ödrum áhugamálum upp á sídkastid. Mig langar ad deila med ykkur smá DIY sem ég gerdi um daginn, en ég föndradi kökustand úr disk og kertastjaka sem ég átti og tad kom bara ótrúlega vel út. 
...........................
Long time since I blogged, I have been really busy with school and work lately so I have not been able to blog. I wanted to share with you a little DIY that I did the other day, but I made a cake stand, using a cheap plate from Ikea and a candle holder from H&M-Home. 



Diskinn keypti ég í IKEA á 100 kr og kertastjakann fékk ég á útsölu í H&M Home á litlar 400 kr. 
Ég keypti nokkra kertastjaka á útsölunni tví mér fannst teir svo sætir en ég keypti bara einn í bleiku og fannst hann aldrei passa inn med hinu skrautinu mínu. Svo datt mér allt í einu í hug ad nota hann sem stand fyrir kökudisk og ég er bara rosalega sátt med útkomuna. 


Ég gerdi tetta í svolitlu flýti og notadi bara límbyssu til ad líma diskinn vid kertastjakann en ég veit ekkert hvad tetta mun haldast lengi. Hann hangir enn saman og ég er búin ad nota hann nokkrum sinnum og tríf hann bara varlega í höndunum eftir notkun. Svona kökustand má nota fyrir ýmislegt annad en ad bera fram kökur en ég hef séd margar hugmyndir eins og t.d. standur fyrir snyrtivörur, armbönd og úr, naglalökk, ilmvötn eda sem skreytingu og setja t.d. kerti á hann. 
........................
I just used a glue gun to glue together the plate and the candle holder and it still holds, although you can probably find some better ideas to glue this together. I just wash it carefully by hand. A cake stand can be used in many other ways than just to serve a cake for example to store your favorite make-up, store jewelry, sun glasses, nail polish or as a decoration with candles.  
 Skartgripir og sólgleraugu.
Jewelry and sunglasses. 
Páskaskreyting
Easter decoration 

 Uppáhalds/mest notadar snyrtivörur
Favorite/most used make-up
Naglalökk
Nail polishes 

Hárskraut og skart 
Hair accessories and jewelry

Rosaleg Oreo-kaka
Amazing Oreo cake.


Friday, March 11, 2016

Púdar, púdar, púdar...Pillows, pillows, pillows.

Jæja loksins loksins get ég sest nidur og skrifad eitt stykki blogg. Ég er eitthvad vodalega skotin í allskonar púdum tessa dagana, hringlaga/hringlóttum púdum, saumudum, hekludum, einföldum og munstrudum. Ég hef verid ad dunda mér vid ad gera smá breytingar í stofunni minni og hef tví verid ad safna ad mér hugmyndum og skoda allskonar púda og skraut. Í sídustu færslu skrifadi ég um stofuna og stílinn sem ég vildi halda mér vid, en tar eru einnig innblástursmyndir frá pinterestinu. 
Ég elska púda og ég fæ aldrei nóg af púdum inn á heimilid, mér finnst teir gera svo mikid og bara vera eitthvad svo kósý. 
Trátt fyrir ad vilja hafa ákvedin stíl á heimilinu, reyna ad láta allt líta ágætlega út, tá finnst mér mikilvægast ad vera í tæginlegu umhverfi tegar ég er heima hjá mér. Tad tarf allt ad vera svolítid kósý og notalegt til ad mér lídi vel. 
Ég bjó til einn hringlaga prjónadann púda alveg fyrir slysni um daginn og mig langadi ad deila med ykkur hugmyndinni tví hann var svo ótrúlega einfaldur.
Ég var búin ad fytja upp 100 lykkjur rúmlega, med gródu garni á hringprjón nr. 5 og ætladi ad prjóna peysu. Tetta var gamalt uppfit og ég mundi ekki alveg hvad ég ætladi ad gera úr tessum hólk sem var búinn ad myndast. Ég var svo búin ad skoda myndir af hringlaga púdum og datt í hug ad prófa bara ad loka fyrir og draga saman hólkinn í sitthvorum endanum og teygja hann utan um hringlaga púda. 
................................
I have been falling in love with round cushions lately. After i decided to change things in my living room i have found so many inspirational photos and got so many ideas. I love all kinds of cushions, round, knitted, crochet, simple, with patterns...all of them. The most important thing though is that they are comfortable. I like the idea of having a simple, and good looking home, but for me a home needs to be a place where you feel comfortable and i need my surroundings to be cozy. That is why i love having pillows around everywhere and I never get enough of them. 
I accidentally made a knitted round pillow the other day, and it was so simple and easy to make that I wanted to share it. I made around 100 loops on a circular needle, and knitted in circle until I had a "tube". Then i stitched together and pulled through in the middle on both sides and put a round pillow inside. 

Tetta kom svo vel út, bara einfalt slétt prjón í hring, prjónadur hólkur og svo tekinn saman sitthvorum megin. 
Púdafyllinguna bjó ég svo til á örskamma stundu, en ég tók myndir til ad sýna hversu einfalt tad var. Í fyllingu nota ég alltaf ódýru litlu púdana úr IKEA. Í tetta sinn notadi ég einn og hálfann púda til ad fylla tennan stóra hringpúda, en hann er 20'' í tvermál.
.............................
This really came out well, just stocking stitch, knit a tube and than pull through, in the center. I made the filling myself, that way i self choose the size of my pillow and it is just easier. I always use the cheap little pillows from IKEA and for this one i used 1 and 1/2 pillow to fill up. 


Mér fannst eitthvad vanta í lokaútkomuna svo ég ákvad ad prófa ad setja tölu í midjuna. Ég átti enga nógu stóra sem passadi vel vid, en ákvad ad prófa ad búa til úr DIY tölu kitti, sem ég keypti fyrir löngu í Tiger. Tetta var ótrúlega einfalt og ég hlakka til ad föndra fleiri tölur.
.........................
I thought the final outcome needed something extra so I used my old button-diy-kit from Tiger to create a little button to put in the center of the pillow. 



Nú get ég snúid honum á báda vegu, hann er med tölu ödru megin og svo engu hinum megin.

Hér eru svo nokkrar fleiri hugmyndir og uppskriftir af fleiri hringlaga púdum. 
.................
Here are some ideas and patterns for more round cushions. 

Blómapúdinn fallegi, blog hér. 
Retro style púdi væri fallegur í fölgráum litum eda fallegum fölum pastel litum. 

Tessi er líka algjört ædi, fullkominn í svefnherbergid, á sófann eda í barnaherbergi.